Tónlist

Framverðir enska rappsins

Þrátt fyrir ágæt tilþrif virðist Mike Skinner eiga í vandræðum með að þróa Streets-konseptið og tónlistina áfram.
Þrátt fyrir ágæt tilþrif virðist Mike Skinner eiga í vandræðum með að þróa Streets-konseptið og tónlistina áfram.

Tvær af skærustu stjörnum breska rappsins eru nýbúnar að senda frá sér plötur. Roots Manuva gaf út sína sjöttu plötu, Slime & Reason, í byrjun september og hálfum mánuði seinna sendi Mike Skinner frá sér fjórðu Streets-plötuna Every­thing Is Borrowed. Trausti Júlíusson lagði við hlustir.

Það hefur aldrei farið mjög mikið fyrir bresku rappi. Það virðist að mestu leyti dæmt til að falla í skuggann á því bandaríska sem meiri peningum er dælt í að framleiða og markaðssetja. Ég þreytist samt seint á því að lofsyngja helstu framverði breska rappsins, en þeir hafa gert nokkrar af bestu plötum síðustu ára. Þeirra á meðal má telja bæði hvíta Birmingham-strákinn Mike Skinner sem sló í gegn fyrir sex árum með Original Pirate Material og svarta dub-skáldið og Lundúnabúann Roots Manuva sem hóf glæstan feril árið 1999 með Brand New Second Hand. Þeir voru báðir að senda frá sér nýjar plötur.



Mýkri og víðsýnni Mike Skinner
Slime & Reason Roots Manuva klikkar ekki á sinni sjöttu plötu.

Mike Skinner hefur lýst því yfir að Everything Is Borrowed sé mýkri og jákvæðari plata heldur en The Hardest Way to Make an Easy Living sem kom út fyrir tveimur árum. Tónlistin kemur öll frá hefðbundnum hljóðfærum sem gefur mýkri og lífrænni hljóm og textarnir eru jákvæðari og opnari. Þeir fjalla um lífið í stærra samhengi en áður. Mike er ekki lengur bara að tala um hversdagslífið í hverfinu. Það eru mörg ágæt lög á plötunni, til dæmis titillagið, The Escapist og Heaven for the Weather og í raun eru engin vond lög á henni, en það vantar samt töluvert upp á að tónlistin sé jafn spennandi og manni fannst hún á fyrstu tveimur Streets-plötunum. Það er enn gaman að Mike Skinner og rímunum hans, en hann virðist samt eiga í erfiðleikum með að þróa sig áfram.

Umslagið á Everything Is Borrowed hefur vakið töluverða athygli, en á framhliðinni er ljósmynd af Skógarfossi og inni í plötubæklingnum eru fleiri myndir af villtri og tilkomumikilli náttúru, að minnsta kosti einhverjar þeirra teknar á Íslandi. Myndirnar eru úr myndröð portúgalsk/breska ljósmyndarans Edgar Martins. Þær eru eins og staðfesting á því að Mike Skinner er farinn að horfa upp úr verkamannahverfinu sínu og er byrjaður að skoða heiminn á nýjan hátt.



Enn eitt meistaraverkið

„We Don't Sell Out/Bout We Sell A Tune Or Two/We Can Buy A Wooden Spoon Or Two," rappar Roots Manuva meðal annars í Again & Again, fyrsta smáskífulaginu af nýju plötunni Slime & Reason. Roots Manuva er listamannsnafn Rodney Smith. Hann hefur aldrei selt jafn mikið af plötum og Mike Skinner þó að hann hafi vakið mikla athygli, sérstaklega í Bretlandi. Roots Manuva er stærsta stjarna Big Dada-útgáfunnar sem er hip-hop armur Ninja Tune.

Það er þrennt sem einkennir tónlist Roots Manuva. Í fyrsta lagi er það röddin sem er einstök. Í öðru lagi er tónlistin framsækin og fersk, án þess að vera endilega byltingarkennd. Hljóðheimurinn er alltaf spennandi. Á nýju plötunni mætti kalla hann elektró-skotið dub-fönk. Og í þriðja lagi eru það textarnir sem eru ljóðrænni en hjá mörgum öðrum röppurum, fullir af flottum stílbrögðum og alvöru tjáningu...

Slime & Reason er þrusu plata. Ein af plötum ársins. Upphafslagið Again & Again er algjör snilld (prófið að spila það á miklum styrk!) og svo kemur hvert gæðastykkið á fætur öðru.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×