Tónlist

Dönnuð stemming

Bogomil Font og Milljónamæringarnir spila í Þrastalundi.
Bogomil Font og Milljónamæringarnir spila í Þrastalundi.

Bogomil Font og Milljónamæringarnir spila á miðnæturtónleikum í Þrastalundi um verslunarmannahelgina, 1. og 2. ágúst. Boðið verður upp á karnivalstemningu í lundinum, sprell yfir daginn fyrir fjölskyldur, hlaðborð að hætti hússins og dansskemmtun fyrir fullorðna.

„Við verðum að spila þetta Milljónamæringaprógram, mambó djambó músík og íslenska slagara frá síðustu öld," segir Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem Bogomil Font. „Við erum með slatta af íslenskum slögurum, sjarmerandi íslenska gullaldarmúsík. Þetta er ekki beinlínis hugsað sem sveitaball heldur meira sem tónleikar. Við erum að stíla á þessa gríðarstóru sumarbústaðabyggð sem er þarna allt í kring.

Meiningin er að fólk geti komið þarna og fengið sér drykk við lifandi tónlist, frekar en að eitthvað gargandi sveitaball. Annars ræðst þetta bara, það er oft erfitt að stjórna því. Þetta gæti leyst upp í eitthvert svakalegt partí þess vegna, maður bara veit það ekki." Sætaferðir verða um sumarbústaðasvæðið á klukkutíma fresti frá klukkan sex til klukkan fjögur um nóttina. - kbs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.