Bíó og sjónvarp

Önnur mynd væntanleg

Skapari Simpsons-fjölskyldunnar segist stefna að því að gera aðra mynd um ævintýri hennar, en vill engu lofa um hvenær það gæti orðið.
Skapari Simpsons-fjölskyldunnar segist stefna að því að gera aðra mynd um ævintýri hennar, en vill engu lofa um hvenær það gæti orðið.

Matt Groening hefur staðfest að það verði gerð önnur mynd um helsta sköpunarverk hans, Simpsons-fjölskylduna alræmdu. Fyrsta myndin, sem hét því frumlega nafni The Simpsons Movie, hlaut afar góðar viðtökur á síðasta ári og rakaði inn 500 milljónum dollara í miðasölu. Groening hefur þó ekki gefið út neinar yfirlýsingar um hvenær framhaldsins verði að vænta.

„Það mun gerast á einhverjum tímapunkti, en ég hef ekki hugmynd um hvenær. Fyrsta myndin tók okkur fjögur ár - aðallega af því að okkur líkar ekki að vinna neitt meira en við gerum nú þegar. Við munum koma að því, ég er viss um það," segir Groening.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×