Innlent

STEF vill hluta af styrktarfé krabbameinssjúks manns

Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Andrew D'Angelo saxófónleikara.
Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Andrew D'Angelo saxófónleikara.

Maður sem stendur fyrir styrktartónleikum fyrir krabbameinssjúkan vin sinn á Organ annað kvöld hefur borist krafa frá STEF þar sem honum er gert að greiða höfundaréttargjöld fyrir þessa tónleika og leggja fram 20 þúsund króna tryggingu fyrir þeim áður en tónleikarnir fara fram.

Hilmar Jensson tónlistarmaður heldur tónleikana til styrktar vini sínum, Andrew D'Angelo saxófónleikara, sem nýverið greindist með illkynja heilaæxli og hefur þegar gengist undir skurðaðgerð. Að sögn Hilmars þarf D´Angelo á frekari meðferð að halda. Öll þessi meðferð sé bæði erfið og dýr og þar sem hann sé án sjúkratryggingar, eins og svo margir Bandaríkjamenn, sé þetta gífurleg byrði fjárhagslega fyrir hann og hans nánustu.

Á tónleikunum annað kvöld koma fram Ólöf Arnalds, Skúli Sverrisson, Benni Hemm Hemm, Stórsveit Nix Noltes og Kira Kira. Öll gefa þau vinnu sína og öll flytja þau eigin tónlist. Hilmar segir því um að ræða mjög undarlega hagsmunagæslu fyrir félagsmenn STEFs.

Hilmar segir að endanleg upphæð sem renni til STEF velti á því hversu margir sæki tónleikana, en yfirleitt sé miðað við að 4% af miðaverði renni til STEF. Hilmar segist hafa rætt málin við forsvarsmenn STEFs til að kanna hvort ekki séu einhverjar undantekningar á reglum um STEF gjöld. Hins vegar sé fátt um svör. Í dag hafi hann hins vegar fengið ítrekun um kröfu STEF-gjaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×