Formúla 1

Loeb meistari meistaranna

Michael Schumacher varð meistari þjóða, en Sebastian Loeb vann keppni einstaklinga.
Michael Schumacher varð meistari þjóða, en Sebastian Loeb vann keppni einstaklinga. Mynd: Getty Images

Frakkinn Sebastian Loeb varð meistari meistaranna í keppni ökumanna á Wembley í dag. Hann vann David Coulthard 2-1 í úrslitum mótsins, þar sem keppt var í flokki einstaklinga og þjóða.

Ekið var á malbikaðri kappakstursbraut á Wembley og voru fjölmargir undanriðlar áður en kom að úrslitum í hvorum flokki. Þjóðverjarnir Michael Schumacher og Sebastian Vettel tryggðu Þýskalandi titil þjóða, eftir harða keppni við Skandínavanna Tom Kristensen frá Damörku og Matias Ekström frá Svíþjóð.

Coulthard og Loeb kepptu síðan til úrslita í keppni einstaklinga og náði Loeb að knýja fram sigur eftir þrjár viðureignir. Hann bætti því enn einum titlinum við bikarsafn sitt, en hann er fimmfaldur heimsmeistari í rallakstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×