Erlent

Dökkt útlit hjá Musharraf

Óli Tynes skrifar
Pervez Musharraf, forseti Pakistans.
Pervez Musharraf, forseti Pakistans.

Vísbendingar eru um að flokkur Pervez Musharrafs hafi fengið lítið fylgi í nýafstöðnum þingkosningum í Pakistan.

Kjörstöðum var lokað á hádegi í dag að íslenskum tíma. Það líða þó allavega einhverjir dagar áður en úrslit liggja fyrir, því talning tekur langan tíma.

Musharraf er forseti Pakistans og þingkosningar breyta því ekki. Ef hinsvegar flokkur hans tapar meirihlutanum á þingi getur orðið erfitt fyrir hann að stjórna.

Musharraf hefur lent í talsverðum hremmingum undanfarin misseri og vinsældir hans dvínað mjög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×