Viðskipti innlent

Færeyjabanki niður í afar fáum viðskiptum

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka féll um rúm 4,8 prósent við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag. Þá lækkaði gengi bréfa í Marel Food Systems um 1,4 prósent og í Össuri um 0,58 prósent. Engin hlutabréf hafa hækkað í verði í dag. Afar lítil viðskipti voru með hlutabréf fyrsta stundarfjórðunginn, eða sex talsins fyrir 1,2 milljónir króna. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,39 prósent og stendur vísitalan í 656 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×