Erlent

Myrti barn sitt í örbylgjuofni

Óli Tynes skrifar

Tuttugu og sjö ára gömul bandarísk kona hefur viðurkennt að hafa myrt barn sitt í örbylgjuofni. Hún var drukkin þegar þetta gerðist.

China Arnolds er sögð hafa vafið eins mánaðar gamla dóttur sína, Paris Talley, inn í teppi áður en hún lagði hana í ofninn, í ágúst árið 2005. Síðan gekk hún út í garðinn.

Nú er Arnolds fyrir rétti í Montgomery sýslu í Ohio, þar sem hún neitar því að hafa framið morð að yfirlögðu ráði.

Saksóknarinn segir að hún hafi játað morðið strax við fyrstu yfirheyrslu. Þá sagði hún; "Ég drap barnið mitt. Ég pakkaði henni inn. Ég lagði hana í örbylgjuofninn. Ég kveikti á honum og gekk út í garð. Hún passaði alveg."

Læknar sem krufðu Paris Talley segja að útvortis hafi ekkert séð á henni. Innvortis hafi hún hinsvegar borið merki um gífurlegan hita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×