Viðskipti erlent

Óbreyttir stýrivextir í Japan

Toshihiko Fukui, seðlabankastjóri Japans.
Toshihiko Fukui, seðlabankastjóri Japans. Mynd/AFP

Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentustigum. Þetta er í takt við væntingar markaðsaðila.

Stýrivextir í Japan voru núllstilltir árið 2000 í kjölfar efnahagslægðar sem gekk yfir Asíu árið 1997. Þeir hafa verið hækkaðir í tvígang síðan þá, um mitt ár 2006 og aftur í byrjun síðasta árs. Að öðru leyti hefur engin breyting orðið á þeim. Toshihiko Fukui, seðlabankastjóri í Japan, hefur oftsinnis sagt, að verðbólguþrýstingur sé í hagkerfinu og verði þurft að hækka vextina eigi að ná verðbólgu niður.

Breska ríkisútvarpið segir að þrátt fyrir góðan hagvöxt í Japan í síðasta fjórðungi nýliðins árs, sem mældist 3,7 prósent, þá séu menn uggandi yfir efnahagshorfum næstu mánuði vegna lánsfjárkreppunnar, sem á rætur að rekja til Bandaríkjanna. Geti það því boðið hættunni heim að hækka stýrivexti í því umhverfi sem nú ríki. Aðrir telja þó allt eins líkur á að vextirnir gætu lækkað tímabundið nú á vordögum til skamms tíma versni efnahagshorfur til muna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×