Rangt haft eftir Þorgerði varðandi ESB 15. desember 2008 13:16 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir MYND/GVA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa sagt að Evrópusambandið væri okkar eini möguleiki líkt og norska dagblaðið Klassekampen heldur fram í dag. Þorgerður segist hafa farið í viðtal við blaðið fyrir 10 dögum og þar hafi hún sagt að við ættum að fara í aðildarviðræður. Hún stendur við þá skoðun sína. „Ég sagði að við ættum að fara í aðildarviðræður og það væri hluti af okkar lausn í efnahagsmálunum. En að aðild að Evrópusambandinu væri okkar eini möguleiki sagði ég aldrei," segir Þorgerður í samtali við Vísi. Hún segist hafa margendurtekið við blaðamanninn að við ættum að fara í viðræður og þar þyrftum við að gæta hagsmuna varðandi auðlindar okkar og þá sérstaklega sjávarútvegsmálin. Þorgerður segist fagna þeirri miklu umræðu sem upp er sprottinn varðandi Evrópusambandið í Sjálfstæðisflokknum. „Menn eru að taka þátt í umræðunni í ríkari mæli og þessi fundur á föstudaginn var góður fyrir þá vinnu sem framundan er. En það er mikill munur á að Evrópusambandið sé okkar eini möguleiki eða að við eigum að fara í aðildarviðræður. Mín skoðun er að við eigum að láta á það reyna." Þorgerður segist einnig hafa sagt að hún vonist til þess að landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykki að hefja aðildarviðræður. „Ég vonast til þess og tel það líklegra en hitt," segir Þorgerður að lokum.
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira