Tónlist

Heimstúr Madonnu hefst á morgun

Madonna í kvikmyndahátíð í Traverse City í Michiganfylki 2. ágúst. MYND/AFP
Madonna í kvikmyndahátíð í Traverse City í Michiganfylki 2. ágúst. MYND/AFP

Söngkonan Madonna undirbýr sig þessa dagana undir tónleikaferð um heiminn sem hefst á morgun á Þúsaldarvellinum í Cardiff. Madonna sem varð fimmtug fyrir rúmri viku mun koma fram á 16 tónleikum í Evrópu, þar á meðal á Wembley í London, áður en hún færir sig yfir til Norður- og Suður-Ameríku.

Madonna fór síðast í tónleikaferð um heiminn fyrir tveimur árum og mun kvenkyns listamaður aldrei hafa þénað jafn mikið á tónleikaferð líkt og hún gerði þá.

Umfang tækja, tóla og fylgdarliðs Madonnu er heldur mikið. Með í för eru tvö svið, fjölmargir búningar, 69 gítarar, 12 trampólín og margt margt fleira. Einkaþjálfari og nuddari söngkonunnar eru hluti af starfsliðinu. Hljómsveit Madonnu í þetta sinn er 12 manna og þá verða 16 dansarar með í för.

Talsmaður Cardiffborgar segir að öll hótel sé yfirfull vegna tónleikanna á morgun. Í nágrannabæjarfélögunum Caerphilly, Newport og Bridged eru einnig margt um manninn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.