Alfreð: Nú þarf þjóðin að taka við sér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. ágúst 2008 14:34 Alfreð segir íslenska landsliðinu til á EM í handbolta í vetur. Mynd/Pjetur „
Ég vona að sama hvernig úrslitaleikurinn fer að fólk kveiki á því að það þarf að gera eitthvað fyrir handboltann á Íslandi. Þetta er hluti af okkar menningu og við erum að setja milljarða í aðra menningu." Skýr skilaboð frá Alfreð Gíslasyni, fyrrverandi landsliðsþjálfara, og núverandi þjálfara þýska stórliðsins Kiel. Hann sagði í samtali við Vísi að árangur Íslands á Ólympíuleikunum í Peking sé sá besti í íslenskum handbolta frá upphafi. „Það var frábært að ná þessu. Það er greinilega frábær stemning í liðinu og allir eru að leggja sitt af mörkum. Það eru nýjir menn að koma inn í liðið, eins og Björvin Páll sem hefur átt marga stórleiki í Peking. Hann er að stimpla sig inn í alþjóðlegan handbolta svo um munar." Ísland vann í dag sex marka sigur á Spáni, 36-30, og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum gegn Frökkum á sunnudagsmorgun. Alfreð sá reyndar ekki leikinn. „Ég er fastur hér í rútu á leið í leik með liðið. En ég fékk skilaboð á mínútufresti í símann minn. Þetta var alveg frábært," sagði hann. „Þetta er mjög vel samsettur hópur. Við eigum þar að auki ekki í neinum meiðslum nú eins og svo oft áður sem skiptir líka miklu máli. Gummi (þjálfari) og Einar (framkvæmdarstjóri HSÍ) og allir í kringum liðið hafa líka staðið sig frábærlega. Þetta er frábær heild eins og ég upplifi þetta." Alfreð segir að Frakkar verði að teljast sigurstranglegri í úrslitaleiknum. „Það er alveg á hreinu. En við höfum sýnt að við getum unnið Frakka en til þess þarf flest að ganga upp. Við erum með lið sem getur þetta en til þess þurfa allir að eiga stórleik." „Pressan er þó meiri á Frökkunum. Þeim mun meira sem við komumst inn í leikinn þeim mun meiri möguleika eigum við."
Handbolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira