Innlent

Saksóknari vildi Ágúst vistaðan á stofnun að lokinni afplánun

Andri Ólafsson skrifar
Ágúst Magnússon
Ágúst Magnússon

Í réttarhöldunum yfir Ágústi Magnússyni krafðist ríkissaksóknari þess að Ágúst Magnússon yrði beittur öryggisráðstöfunum að lokinni afplánun á fangelsisdómi sínum.

Þessi krafa var rökstudd með mati sálfræðings sem lagt var fyrir dómara.

Þar kom fram að Ágúst væri haldinn alvarlegri barnagirnd og þrálátum kynórum. Það var einnig mat sálfræðingsins að Ágúst ráði ekki við þessar kenndir og því sé hætta á því að hann brjóti af sér á ný.

Með öryggisráðstöfunum er átt við að Ágúst yrði áfram vistaður á stofnun þrátt fyrir að hafa lokið afplánun. Heimild er fyrir þessu í lögum þótt henni hafi aldrei verið beitt.

Aðeins einu sinni áður hefur þess verið krafist að maður sé beittur þessu úrræði en það var í máli ákæruvaldsins gegn Steingrími Njálssyni. Dómari féllst ekki á þá kröfu frekar en í málinu gegn Ágústi Magnússyni.

Ágúst var hins vegar dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir brot gegn sex drengjum. Dómurinn féll föstudaginn 26. mars 2004. Hann er nú á reynslulausn og er fluttur til Svíþjóðar eins og Vísir greindi frá í dag. Stundar nám við bilbíuskóla í Uppsölum.

Sigríður Björnsdóttir, annar forsvarsmaður samtakanna Blátt áfram, gagnrýnir úrræðaleysi á málum forhertra barnaníðinga. „Í fyrsta lagi á svona maður að sitja allan dóminn. Hann á ekki að fá reynslulausn. Í öðru lagi þarf úrræði fyrir menn sem hafa fengið dóma fyrir kynferðisbrot gegn börnum og hafa lokið afplánun," segir Sigríður. „Sérstaklega þeim sem að mati sérfræðinga eru taldir líklegir til þess að brjóta af sér aftur eins og í þessu tilfelli."

Sigríður segist þeirrar skoðunar að í sumum tilfellum verði hreinlega að vista menn áfram á stofnunum eftir að þeir hafi lokið afplánun eins og heimild er fyrir í lögum. Það sé nauðsynlegt til að verja börn fyrir kynferðislegu ofbeldi. „ÞvÍ sumum mönnum er hreinlega ekki viðbjargandi."














Tengdar fréttir

Barnaníðingur í biblíuskóla

Ágúst Magnússon, sem nýlega losnaði úr fangelsi eftir fimm ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum, hefur hafið nám við Livets Ord biblíuskólann í Uppsölum í Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×