Erlent

Birgir Páll ekki ákveðið um áfrýjun í Færeyjum

Frá Færeyjum
Frá Færeyjum

Birgir Páll Marteinsson hefur ekki ákveðið hvort hann áfrýjar sjö ára fangelsisvist sem hann var dæmdur í í Færeyjum, fyrir þátt sinn í Pólstjörnumálinu.

Hann ætlar að taka sér góðan frest til að skoða málið ásamt lögmanni sínum.

Dómurinn var kveðinn upp síðastliðinn föstudag. Bæði Birgir Páll og ákæruvaldið hafa tveggja vikna frest til að ákveða um framhaldið.

Saksóknari krafðist þess að Birgir Páll yrði dæmdur í 10 ára fangelsi. Linda Margarete Hasselberg saksóknari, sagði í samtali við Vísi að ákæruvaldið muni sömuleiðís taka sér tíma til að skoða málið áður en ákveðið verður um áfrýjun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×