Ferrari hefur ákveðið að hætta notkun ljósabúnaðar sem átti þátt í því að Felipe Massa fékk engin stig í síðasta móti, í Singapúr. Mikil hætta skapaðist þegar þjónustumaður gerði mistök og ræsti Massa af stað þó þjónustuhléi væri ekki lokið.
Stefano Domenicali segir að öruggast sé að hætta notkun ljósabúnaðarins í síðustu mótum ársins til að skapa öryggi og minnka möguleika á óhöppum. Massa var í forystuhlutverki þegar atvikið kom upp í Singapúr mótinu
Massa var einu stigi á eftir Lewis Hamilton fyrir síðasta móti, en eftir klúður í þjónustuhléi þar sem Massa dró á eftir sér bensínslönguna fékk hann engin stig. Lewis Hamilton er sjö stigum á undan Massa eftir mótið í Singapúr. Hann varð í þriðja sæti í mótinu og vann sér inn dýrmæt stig.
Í mótinu í Japan um næstu helgi þá mun Ferrari beita sömu aðferð í þjónustuhléum og önnur lið hafa gert á árinu. Ferrari ætlaði að græða sekúndubrot með notkun ljósabúnaðarins, en tekur upp gömlu aðferðina, notar mann með skilti sem hleypir Massa og Kimi Raikkönen af stað í þjónustuhléum. Sú aðferð hefur verið notuð í áratugi með ágætum árangri.