Tónlist

Hvíla sig á upptökum

Strákarnir í Arctic Monkeys eru að undirbúa sína þriðju plötu.
Strákarnir í Arctic Monkeys eru að undirbúa sína þriðju plötu.

Breska hljómsveitin Arctic Monkeys ætlar að spila á tónlistarhátíðinni Big Day Out í Ástralíu í janúar þrátt fyrir að vera enn á kafi í gerð sinnar þriðju plötu.

„Okkur fannst þetta dálítið óhefðbundið að klára ekki plötuna fyrst en af hverju ekki að kýla á það og hugsa um hina hlutina síðar? Auk þess höfum við aldrei fengið tækifæri til að njóta ástralska sumarsins," sagði trommarinn Matt Helders.

Josh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, aðstoðar þá félaga við gerð nýju plötunnar og lofar Helders því að útkoman verði eitthvað alveg nýtt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.