Cassell er að reyna að fá sig lausan 26. febrúar 2008 12:26 Nordic Photos / Getty Images
Gamla brýnið Sam Cassell hjá LA Clippers er nú að reyna að fá sig lausan undan samningi og hefur hug á að ganga í raðir liðs sem á möguleika á að vinna meistaratitilinn í sumar. Cassell er 38 ára gamall og er á síðasta ári sínu í samningi sínum við Clippers. Hann þarf líklega að sjá á eftir megninu af þeim rúmlega 360 milljónum króna sem hann á eftir af samningnum ef hann vill fá sig lausan. Cassell viðurkenndi að viðræður væru í gangi milli forráðamanna Clippers og umboðsmanns síns þegar LA Times náði tali af honum í dag, en hann hefur mikið verið orðaður við Boston Celtics í allan vetur. Clippers-menn reyndu að skipta Cassell í burtu áður en félagaskiptaglugginn lokaðist á dögunum en ekkert varð af því. Boston gæti vel nýtt sér krafta Cassell sem er reyndur sigurvegari, en hann hefur átt í baráttu við meiðsli af og til í vetur. Vitað er að lið eins og Denver og Phoenix hafa líka áhuga á að nýta sér krafta Cassell, sem þarf að fá sig lausan fyrir laugardaginn ef hann ætlar sér að geta komist að hjá öðru liði í vetur.
NBA Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira