Viðskipti innlent

Krónan fellur um 2,5 prósent

Gengi krónunnar hefur fallið um rúm 2,5 prósent í dag. Vísitalan stendur í 167,3 stigum. Evran kostar nú 130 krónur og hefur aldrei verið dýrari.

Krónan lækkaði strax í morgun um 0,6 prósent. Bandaríkjadalur kostar nú 83,9 krónur, breskt pund 164,5 krónur og ein dönsk króna 17,4 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×