Formúla 1

Barátta McLaren og Ferrari hafin í Japan

Lewis Hamilton á fullri ferð á Fuji brautinni í Japan á umhverfisvænni grænmáluðum dekkjium.
Lewis Hamilton á fullri ferð á Fuji brautinni í Japan á umhverfisvænni grænmáluðum dekkjium. Mynd: Getty Images

Fyrsta æfing keppnislliða í Formúlu 1 var í Japan í nótti og Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma, en ljóst er að það stefnir í harðan slag á milli McLaren og Ferrari.

Ökumenn frá þessum liðum röðuðu sér í efstu sætin í glampandi sól. Hamilton ók á 1.18.910 og var liðlega 0.1 sekúndu fljótari en Felipe Massa. Heikki Kovalainen á McLaren varð 0.3 sekúndum á eftir og Kimi Raikkönen 0.4 á eftir Hamilton. Næstir á eftir voru Fernando Alonso og Nelson Piquet á Renault, en Alonso vann síðustu keppni, sem var í Singapúr. Hinn ungi Sebastian Vettel náði sjöunda besta tíma.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×