Golf

Mikil spenna á heimsmótinu í Ohio

Vijay Singh
Vijay Singh NordcPhotos/GettyImages

Kylfingarnir Lee Westwood, Vijay Singh og Phil Mickelson eru efstir og jafnir fyrir lokahringinn á heimsmótinu í golfi á PGA mótaröðinni sem fram fer í Akron í Ohio í Bandaríkjunum.

Mikil spenna er á mótinu þar sem í boði eru sigurlaun upp á 108 milljónir króna. Margir af bestu kylfingum heims keppast nú að því að hirða titilinn hans Tiger Woods á þessu stórmóti sem Woods vann í fyrra en hann er ekki með á þessu móti þar sem hann er enn að jafna sig eftir hnéaðgerð.

Spánverjinn Miguel-Angel Jimenez náði snemma forystu eftir frábæra byrjun, en hann lék þó af sér undir lokin og er ásamt fjórum öðrum kylfingum í sjöunda sæti, fjórum höggum á eftir efstu mönnum.

Phil Mickelson er staðráðinn í að nýta sér fjarveru Tiger Woods og fuglar á fjórtándu, fimmtándu og sextándu virtust ætla að skila honum forystu fyrir lokahringinn. Hann fékk hins vegar skolla á lokaholunni og fór hringinn á tveimur höggum undir pari og er samtals á átta höggum undir pari eftir þrjá hringi.

Það þyðir að Fijimaðurinn Vijay Singh og Englendingurinn Lee Westwood eru jafnir Mickelson í efsta sæti fyrir lokahringinn.

Westwood var í hópi þeirra kylfinga sem stóðu sig best í gær. Hann fór hringinn á þremur höggum undir pari.

Singh sem hafði eins höggs forystu fyrir gærdaginn gekk upp og ofan í gær. Hann lék hringinn á einu höggi undir pari og er jafn þeim Westwood og Mickelson fyrir lokahringinn sem verður leikinn í dag og verður í beinni útsendingu á Stöð2 sport klukkan sex.



Staðan á mótinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×