Sport

Powell náð næstbesta tíma sögunnar

NordicPhotos/GettyImages

Jamaíkumaðurinn Asafa Powell náði næstbesta tíma sögunnar í 100 metra hlaupi þegar hann sigraði á frjálsíþróttamóti í Sviss í gærkvöld. Powell hljóp á 9,72 sekúndum sem er jöfnun á gamla heimsmeti landa síns Usain Bolt frá því í maí.

Bolt bætti heimsmetið í 100 metra hlaupi á Ól í Peking um daginn þegar hann hljóp á 9,69 sekúndum. Hann vann 200 metra hlaupið á mótinu í Sviss í gær og kom þá í mark á 19,63 sekúndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×