Körfubolti

Sovic á leið frá Breiðabliki

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nemanja Sovic.
Nemanja Sovic.

Nemanja Sovic hefur farið þess á leit við félagið að verða leystur undan samningi. Hann skrifaði undir tveggja ára samning þegar hann gekk til liðs við Blika í október.

Þetta kemur fram á vefsíðunni karfan.is en í samtali við síðuna sagði Sovic að ástæðan fyrir því að hann vilji fara sé mistúlkun á samningi hans milli síns og Breiðabliks.

Sovic er þrítugur serbneskur leikmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×