Handbolti

Lækkað miðaverð á tvíhöfða HK í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik með HK á tímabilinu.
Úr leik með HK á tímabilinu.

Hk hefur ákveðið að lækka miðaðverð á leikina tvo sem eru á dagskrá hjá félaginu í N1-deildum karla og kvenna í kvöld.

Miðaverð á báða leikina er einungis 500 krónur en kvennalið HK tekur á móti Stjörnunni klukkan 18 og karlaliðið á móti Víkingi klukkan 20. Þeir sem mæta í rauðu og eru merkti HK fá hins vegar frían aðgang.

Þá eru tveir aðrir leikir á dagskrá N1-deild karla í kvöld. Haukar taka á móti fram og þá mætir Akureyri toppliði Vals norðan heiða.

Sjá frétt á heimasíðu HK.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×