Formúla 1

Fjórir fremstu stefna á sigur

Fremstu menn í tímatökunni og á ráslínu í Singapúr í dag.
Fremstu menn í tímatökunni og á ráslínu í Singapúr í dag. mynd: Getty Images

Forystumennirir í stigamótinu í Formúlu 1 ræsa fremstir af stað í kappakstrinum í Singapór í dag og stefna allir á sigur. Bein útsending frá mótinu hefst kl 11.30 á Stöð 2 Sport.

Felipe Massa, Lewis Hamilton, Kimi Raikkönen og Robert Kubica eru efstir í stigamótinu og röðuðu sér fremst á ráslínu í tímatökunni í gær. Lítil hætta er á rigningu eins og spáð var fyrir helgina, en hitinn verður í kringum 32 gráður, sem gæti komið Ferrari til góða. Þegar kaldara er í veðri virðast ökumenn eiga erfitt með að koma hita í dekkin.

,,Ég tel að við séum með góða keppnisáætlun. Ég náði fullkomnum hring í tímatökunni og því varð munurinn á mér og Hamilton 0.6 sekúndur", sagði Massa sem ræsir fremstur á undan Hamilton.

,,Nú ríður á að halda 100% einbeitingu í mótinu sem verður langt og strangt. Það er mikið af mishæðum í brautinni sem truflar aksturinn, sérstaklega milli beygju fimm og sjö. Það verður stórmál að hafa þol í 61 hring. Þá verður ræsingin mikilvæg og lykilatriði að byrja mótið af krafti", sagði Massa.

Sex ökumenn eiga möguleika á titlinum þegar fjórum mótum er ólokið og Massa hefur eins stigs forskot á Hamilton. Kubica og Raikkönen eiga ágæta möguleika og er ljóst að hörð barátta verður á milli þessara kappa í dag.

Sjá ummæli ökumanna












Fleiri fréttir

Sjá meira


×