Markaðsaðstæður éta upp hagnaðinn 20. mars 2008 09:14
Hagnaður svissneska alþjóðabankans Credit Suisse nam 7,76 milljörðum franka, jafnvirði 620,5 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er sex prósentum undir áætlun. Erfiðar markaðsaðstæður í byrjun árs munu líklega éta upp hagnað bankans á fyrsta ársfjórðungi, að mati stjórnenda. Stjórnendurnir segja að bankinn hafi skilað hagnaði fram í enda febrúar en að lélegur marsmánuður hafi valdið því að líkur séu á að hagnaðurinn þurrkirst út á fyrsta ársfjórðungi öllum. Þá spilar inn í að nokkrir verðbréfamiðlarar bankans, sem sumum hverjum hefur verið sagt upp, hafi vísvitandi ofmetið verðmæti verð- og skuldabréfavöndla í eigu bankans. Af þessum sökum hafi verið nauðsynlegt að færa verðmætið niður um 2,86 milljarða franka, að sögn breska ríkisútvarpsins. Þótt talan sé há er þetta engu að síður 200 milljónum franka minna en bankinn reiknað með að þurfa að strika út úr bókum sínum þegar málið kom upp í síðasta mánuði.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira