Viðskipti erlent

Fjármálakreppunni lokið?

Frá bandarískum hlutabréfamarkaði.
Frá bandarískum hlutabréfamarkaði.

Fjármálasérfræðingar í Bandaríkjunum hafa verið afar jákvæðir í dag og hafa nokkrir þeirra kveðið svo fast að orði að aðgerðir bandaríska seðlabankans hafi leitt til þess að versta hríðin á hlutabréfamörkuðum sé yfirstaðin.

Einn þeirra, Richard Bove, sem er velkunnur sérfræðingur í fjármálum vestanhafs, kvað svo sterkt að orði í samtali við bandarísku sjónvarpsfréttastöðina CNBC í dag, að fjármálakreppunni sé svo til lokið. Hann segir þó fleiri neikvæðar fréttir eiga eftir að birtast af fjármálamörkuðum. Áhrif þeirra verði hins vegar smávægilegar í samanburði við það sem á undan er gengið.

Að sögn Boves markaði fall bandaríska fjárfestingarbankans Bear Stearns um síðustu helgi og sala hans botn niðursveiflunnar. Snörp viðbrögð bandaríska seðlabankans hafi hins vegar verið útslagið og telji hann ólíklegt að markaðurinn fari öllu neðar.

Gagnrýnendur segja Bove hafa tekið stórt upp í sig en útiloka þó ekki að það versta sé yfirstaðið.

Inn í jákvæðu fréttirnar spila verðlækkun á hráolíu, sem fór undir 100 dali á tunnu í dag, og lækkun á annarri hrávöru, svo sem gulli. Olíuverðið fór lægst í tæpa 99 dali á tunnu og hefur slík verðlagning á svartagullinu ekki sést síðan í byrjun mánaðar. Styrking bandaríkjadals á hlut að máli en samband er á milli veikingu dalsins upp á síðkastið og verðhækkunar á hráolíu.

Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hafa hækkað talsvert í dag. Þannig hefur Dow Jones-vísitalan nú hækkað um tæp 1,8 prósent en fór mest upp um 2,1 prósent. Nasdaq-vísitalan hefur á sama tíma hækkað um rúm 1,6 prósent.

Vísitölurnar fóru nokkuð niður fyrr um daginn og sáu fjárfestar þá hag sinn í kaupum á hlutabréfum, að sögn fréttastofunnar Associated Press.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×