Körfubolti

Keflavík burstaði ÍR í Seljaskóla

Keflvíkingar gerðu sér lítið fyrir og rassskelltu ÍR-inga 97-79 í Seljaskóla í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í kvöld og því er staðan orðin jöfn 2-2 í einvíginu. Framundan er oddaleikur í Keflavík.

ÍR-ingar byrjuðu mun betur og komust í 15-4, en eftir það hresstust Keflvíkingar og tóku öll völd á vellinum. Þeir höfðu yfir 20-17 eftir fyrsta leikhluta og leiddu 48-39 í hálfleik.

Þriðji leikhlutinn var svo algjörlega eign Keflvíkinga, sem þeir unnu með 16 stigum. Eftirleikurinn var svo suðurnesjamönnunum auðveldur og nú eiga Keflvíkingar oddaleik á heimavelli sínum til að klára dæmið eftir tvo sigra í röð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×