Golf

Ólöf María í 57.-61. sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólöf María Jónsdóttir.
Ólöf María Jónsdóttir.

Ólöf María Jónsdóttir hefur lokið keppni á móti í Skotlandi sem var hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Hún átti þó sinn slakasta hring í dag.

Hún lék á 76 höggum í dag og var því samtals á þrettán höggum yfir pari eftir keppnisdagana þrjá.

Þetta er annað mót Ólafar á keppnistímabilinu eftir tveggja ára hlé. Hún býr í Bandaríkjunum og keppir næst á Evrópumótaröðinni í næsta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×