Formúla 1

Rallmeistarinn snöggur í Formúlu 1

Sebastian Loeb setur á sig hjálminn á Barcelona brautinni þar sem hann er við æfingar með Formúlu 1 liði Red Bull.
Sebastian Loeb setur á sig hjálminn á Barcelona brautinni þar sem hann er við æfingar með Formúlu 1 liði Red Bull. Mynd: Getty Images

Frakkinn Sebastian Loeb, sem er fimmfaldur heimsmeistari í rallakstri æfir á Formúlu 1 bíl í Barcelona í dag og hann ók einnig í gær. Hann náði mjög frambærilegum tíma á Red Bill í samkeppni við reynda kappaksturskappa.

Loeb tryggði sér nýverið meistaratitilinn í fimmta sinn, en hann ekur með Citroen. Lið hans er styrkt af Red Bull og sem verðlaun fyrir titilinn fékk hann prufu með Red Bull. Hann ók líka á Silverstone í síðustu, en var þá einn síns liðs. Núna fær hann samanburð við reynslubolta í kappakstri.

"Það sem er erfiðast að venjast er að það er bara drif að aftan, ekki fjórhjóladrif eins og í rallbílnum mínum. Svo er stórt mál að skilja hvað bremsurnar eru öflugar í Formúlu 1 bíl, að meta hraðann og hvenær á að stoppa", sagði Loeb um akstur Formúlu 1 bíls.

Loeb náði áttunda besta tíma í gær, en sautján ökumenn æfðu af kappi á Barcleona brautinni. "Ég held ég sé of gamall til að fá sæti í Formúlu 1 og keppi í rallakstri á næsta ári. En ég gæti vel hugsað mér brautar kappakstur þegar rall ferli mínum líkur", sagði Loeb.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×