Formúla 1

BMW ljótasti Formúlu 1 bíllinn

Nýja útlit BMW fyrir 2009 fellur ekki Christian KLien vel í geð. Þá þykir framendinn breiður og gæti reynst vandamál í framúrakstri.
Nýja útlit BMW fyrir 2009 fellur ekki Christian KLien vel í geð. Þá þykir framendinn breiður og gæti reynst vandamál í framúrakstri. mynd: Getty Images

Christian klien, þróunarökumaður BMW er ekki hrifinn af útliti 2009 bílsins sem hefur verið prófaður á Barcelona brautinni í vikunni. Klien segir bílinn þann ljótasta sem hann hafi séð.

"Bíllinn er þokklaega kynþokkafullur….. Nei. Þetta er ljótasti Formúlu 1 bíll sem ég hef augum litið, en honum verður breytt talsvert fyrir fyrsta mót. En eins og staðan er núna þá er þetta furðurlegur bíll í mínum augum", sagði Klien.

"Bíllinn lætur þó vel að stjórn og er hraðskreiður. Yfirbyggingin er samkvæmt nýju reglunum sem verða í gildi á næsta ári. Það er mun minna niðurtog, en gripið er mikið í beygjum þar sem við erum að prófa raufalaus dekk. Það er rétt ákvörðun FIA að nota þessi dekk á næsta ári."

Ökumenn sem hafa æft í Barcelona og þá sérstaklega BMW menn hafa áhyggjur af því hve breiðir framvængir bílanna eru. Þeir segja hættu á því að vængirnir brotni þegar menn reyni framúrakstur, ekki síst í upphafi móta. Allir bílar eiga þó eftir að breytast fram að fyrsta móti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×