Körfubolti

Fannar í banni gegn KR í kvöld

Fannar er hér til hægri í harðri baráttu við Friðrik Stefánsson í leik Stjörnunnar og Njarðvíkur í vetur
Fannar er hér til hægri í harðri baráttu við Friðrik Stefánsson í leik Stjörnunnar og Njarðvíkur í vetur Mynd/Anton

Fannar Helgason þarf að taka út leikbann í kvöld þegar Stjarnan fær KR í heimsókn í Iceland Express deild karla í körfubolta.

Fannar hefur verið dæmdur í eins leiks bann fyrir óprúðmannlega framkomu í leik Stjörnunnar og Þórs frá Akureyri.

Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Stjörnumenn fyrir leikinn gegn taplausum KR-ingum í kvöld, því Fannar hefur skilað liði sínu 12 stigum og tæpum 12 fráköstum að meðaltali í leik í vetur.

Leikur Stjörnunnar og KR hefst klukkan 19:15 í kvöld og á sama tíma eigast við FSu og Breiðablik á Selfossi og Grindavík og Keflavík suður með sjó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×