Skjálftinn á Suðurlandi - Yfirlit 29. maí 2008 23:03 Fjöldi sjálfboðaliða frá Rauða Krossinum var á Selfossi í gær.
Jarðskjálfti sem mældist 6.3 á Richter skók Suðurland í gær. Tæplega þrjátíu manns slösuðust, þó enginn alvarlega. Flestir þeirra sem meiddust hlutu skurði og skrámur en eitthvað var um beinbrot. Gífurlegt eignartjón var á Selfossi, í Hveragerði, á Þorlákshöfn og þar um kring. Lítið var um tjón á mannvirkjum en þeim mun meira á innanstokksmunum. Margar vatsnlagnir fóru í sundur með tilheyrandi tjóni. Fólk var beðið um að halda sig utandyra fyrstu klukkutímana eftir skjálftann en þeim sem áttu hús sem voru heil var gefið leyfi til að snúa aftur heim undir kvöld. Margir kusu hins vegar að hafast frekar við í tjöldum, húsbílum og tjaldvögnum. Fjöldahjálparstöðvar á vegum Rauða Krossins voru opnaðar á Selfossi og í Hveragerði en þar söfnuðust margir saman. Hér fyrir neðan er að finna fréttirnar sem Vísir skrifaði um skjálftann í gær.
Tengdar fréttir Með minni Suðurlandsskjálftum þrátt fyrir mikla eyðileggingu Suðurlandsskjálftinn í dag er með minni Suðurlandsskjálftunum síðan að mælingar hófust en nú er talið að hann hafi verið um 6,2 stig á Richters-kvarða. 29. maí 2008 21:03 Fjöldahjálparstöð sett upp á Selfossi Fréttir berast nú af því að nokkrir hafi slasast á Selfossi og víðar á Suðurlandi af völdum skjálftans í dag. Samkvæmt Almannavörnum voru þeir fluttir á heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi en læknar þar eru hræddir um að skemmdir hafi orðið á byggingunni og því er ekki óhætt að taka við sjúklingum. Bygginging mun vera töluvert mikið skemmd og stendur til að rýma hluta hússins. 29. maí 2008 16:39 Lögreglan keyrir um með gjallarhorn í Hveragerði Lögreglan keyrir um götur Hveragerðis og biður fólk um að vera utandyra. Hætta er á eftirskjálftum og er fólk í nágrenninu beðið um að halda sig utandyra 29. maí 2008 16:58 300 björgunarsveitarmenn að störfum í Árnessýslu Yfir 300 björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú að störfum á jarðskjálftasvæðinu í Árnessýslu. Flutt hafa verið tjöld og greiningastöðvar á svæðið. 29. maí 2008 19:01 Mikið tjón í Eden en í lagi með Bóbó Sveingbjörg Guðnadóttir verslunarstjóri í Eden í Hveragerði segir allt vera í rúst í búðinni. „Það bara hrundi allt niður sem gat hrunið,“ segir Sveinbjörg sem segir þennan skjálfta þann stærsta sem hún hefur upplifað. Búðinni var lokað í kjölfarið. 29. maí 2008 17:11 Fjármálaráðherra er umhugað um fólkið Árni Mathiesen segir ljóst að jarðskjálftinn í dag verði ræddur á fundi ríkisstjórnarinnar sem haldinn er á morgun. Árni er staddur á Selfossi til að kynna sér aðstæður og hafði einnig komið við í Hveragerði. Árni segir að eyðileggingin sé talsverð. 29. maí 2008 20:12 Stærstu eftirskjálftarnir yfir 4 á Richter Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur mikið af eftirskjálftum riðið yfir Suðurland eftir stóra skjálftann síðdegis. 29. maí 2008 18:56 Öflugur jarðskjálfti - 6,1 á Richter Öflugur jarðskjálfti reið yfir klukkan 15:45 í dag. Jarðfræðingur á Veðurstofunni sagði í samtali við Vísi að líklega hefði hann verið rúmlega 6 á Richter kvarðanum, sennilega á bilinu 6,1- 6,3. Upptök skjálftans voru í Ölfusi, nær Reykjavík en Suðurlandsskjálftarnir sem riðu yfir sumarið 2000. 29. maí 2008 15:48 Á þriðja tug manna slasaðir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir segir að á þriðja tug manna hafi slasast í jarðskjálftanum í dag. Enginn þó alvarlega svo vitað sé. Meiðslin eru allt frá skrámum og skurðum til beinbrota. 29. maí 2008 20:06 Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöðvar víða á Suðurlandi Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöðvar í Vallarskóla á Selfossi, við íþróttamiðstöðina í Hveragerði, grunnskólanum í Þorlákshöfn, safnaðarheimilinu á Hellu, 29. maí 2008 20:19 Fólk beðið um að halda sig utandyra Þeir sem þarfnast aðstoðar vegna skjálftans eru beðið um að hafa samband við Neyðarlínuna,112. 29. maí 2008 16:30 Búið að opna Óseyrarbrú Aðeins Óseyrarbrú hefur verið lokað eftir skjálftann síðdegis en aðrir vegir eru opnir. Greinilegar skemmdir hafa orðið á brúnni en hún hefur nú verið opnuð. 29. maí 2008 18:27 Jarðskjálfti við Ingólfsfjall Jarðskjálfti sem mældist 3,2 á Richter varð við suðvesturenda Ingólfsfjalls, um 5 km norðvestur af Selfossi, í dag klukkan 14:41. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn hafi orðið á um 5 kílómetra dýpi og að skjálftar séu ekki óalgengir á þessum slóðum. 29. maí 2008 15:31 Búið að loka Ölfusárbrúnni Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er búið að loka Ölfusárbrúnni á meðan verið er að kanna skemmdir á hennni. Einnig hefur vegur við gosströnd farið í sundur sem og á veginum við Eyrarbakka. 29. maí 2008 16:13 Unnið að því að ná yfirsýn yfir stöðu mála Í Samhæfingarstöðinni er nú unnið að því að ná yfirsýn yfir stöðu mála á Suðurlandi. 29. maí 2008 21:36 Sjúkrahúsið á Selfossi rýmt Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur verið rýmd vegna hættu á öðrum stórum skjálfta. Verið er að fara með fólk út í rútur en flestir halda þó ró sinni. 29. maí 2008 18:33 Mikið tjón í Heiðarbrún í Hveragerði Þau Ingibjörg Garðarsdóttir og Róbert Hlöðversson eru búsett á Heiðarbrún 66 í Hveragerði en í þeirri götu virðist einna mesta eignatjónið í skjálftanum átt sér stað. Ingibjörg segist blessunarlega hafa verið stödd út á götu þegar skjálftinn reið yfir. Hún segist ekki hafa heyrt af meiðslum hjá þeim sem búsettir eru í götunni en tjónið er gífurlegt. 29. maí 2008 19:12 Skjálftinn grynnri en sá sem var árið 2000 „Þessi skjálfti er að vissu leyti verri en sá sem var árið 2000 því að þessi er grynnri en sá sem var þá," segir Sigurður Ragnarsson, veðurfræðingur á Stöð 2. 29. maí 2008 16:28 Almannavarnarnefnd: Fólki heimilt að snúa aftur heim Að mati sérfræðinga eru minni líkur en meiri á því að eftirskjálftar af þeirri stærð þess sem gekk yfir í dag muni fylgja. 29. maí 2008 20:36 Hélt að þetta væri mitt síðasta Bergljót Davíðsdóttir blaðamaður er búsett í Hveragerði og hún hélt að það væri hennar síðasta þegar jarðskjálftinn reið yfir nú fyrir skömmu. 29. maí 2008 16:15 TM og Vís biðja fólk að taka myndir af skemmdum Tryggingamiðstöðin vill benda fólki sem orðið hefur fyrir tjóni af völdum jarðskjálfta á að taka ljósmyndir af skemmdunum og tilkynna tryggingafélagi sínu þær sem fyrst. Þegar málið hefur verið skoðað af tryggingafélagi ákvarða Viðlagasjóður og tryggingafélag næstu skref. 29. maí 2008 18:23 Fjöldahjálparstöðvar opnar í Hveragerði og á Selfossi í nótt Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins verða opnar í Hveragerði og á Selfossi í nótt. Lítil ásókn hefur verið í fjöldahjálparstöðvarnar í nágrannabæjunum, og hefur því verið ákveðið að loka á Hvolsvelli, Hellu, Þykkvabæ, Stokkseyri og Eyrarbakka fyrir miðnætti. 29. maí 2008 22:23 „Það bara fór allt á hliðina“ „Það bara fór allt á hliðina," segir Lárus Bjarnasoníbúi á Selfossi sem sendi Vísi myndir af heimili sínu eftir skjálftann. 29. maí 2008 16:52 Rauði krossinn virkjar Hjálparsímann 1717 Rauði kross Íslands hefur virkjað neyðarvarnarkerfi sitt og opnað fjöldahjálparstöðvar í Hveragerði og Selfossi. Þá hefur Hjálparsíminn 1717 verið opnaður fyrir aðstandendur sem vilja spyrjast fyrir um afdrif skyldmenna. 29. maí 2008 18:03 Skjálftinn hindraði Sirrý ekki í að halda sjötugsafmælið Sirrý Geirsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning, fagnaði 70 ára afmæli sínu í dag og hafði boðið til sín fjölda gesta á Hótel Örk í Hveragerði. Skjálftinn reið yfir um það leyti sem gestir voru að ganga í húsið. Að sögn Sirrýar urðu miklar skemmdir á hótelinu, einkum í eldhúsinu og var því ákveðið að hleypa engum inn í húsið. 29. maí 2008 20:55 Heilsuhælið rýmt - Neyðartjöldum komið fyrir við Hótel Örk Heilsuhælið á Hveragerði var rýmt í dag skömmu eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Sæmundur Ingibjartsson yfirsmiður á hælinu segir að rúmlega 130 manns hafi verið á hælinu þegar skjálftinn reið yfir en enginn hafi slasast. Flestir vistmenn eru farnir til síns heima. 29. maí 2008 18:41 Vegfarandi undir Ingólfsfjalli segist aldrei hafa lent í öðru eins Kristinn Guðlaugsson var á ferð í sendiferðabíl undir Ingólfsfjalli þegar jarðskjálftinn reið yfir. Hann segist aldrei hafa lent í öðru eins. 29. maí 2008 16:32 Grjóthrun í Herjólfsdal Lögregla í Vestmannaeyjum segir grjót hafa hrunið niður í Herjólfsdal en ekki hafi enn verið tilkynnt um neitt tjón af völdum jarðskjálftans sem fannst þó glöggt þar. Vestmannaeyingur sendi meðfylgjandi mynd af grjóthruninu. 29. maí 2008 16:29 Stöðugt leitað eftir læknishjálp vegna skjálftans Stöðugur straumur fólks hefur verið á heilsugæslustöðina í Hveragerði frá því að skjálftinn reið yfir. 29. maí 2008 17:10 Óútskýranleg flóðbylgja í Færeyjum Íbúar við Hvannasund í Færeyjum hafa verið varaðir við að vera niðri í fjöru eftir óútskýranlega flóðbylgju sem gekk þar yfir í gær. 29. maí 2008 15:09 Voru nýkomin úr hestaferð þegar skjálftinn reið yfir Fólk á vegum Eldhesta í Hveragerði var nýkomið úr hestaferð þegar skjálftinn reið yfir um fjögurleytið í dag. 29. maí 2008 18:13 Rauði krossinn tekur á móti fólki við Hótel Örk Í Hveragerði getur fólk safnast saman á bílaplaninu nálægt Hótel Örk og mun viðbragðshópur Rauða krossins koma þangað innan stundar með aðstöðu.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgum. 29. maí 2008 17:21 Brúnt moldarský yfir Ingólfsfjalli -Ég hélt að húsið myndi hrynja og að við myndum öll deyja, sagði Ásdís Sigurðardóttir, sem býr í fjölbýlishúsi að Fossvegi 2 á Selfossi, í samtali við Vísi. 29. maí 2008 16:17 Allar björgunarsveitir í Árnessýslu kallaðar út Töluverðar skemmdir hafa orðið á húsum á Selfossi vegna skjálftan sem reið yfir á fjórða tímanum. Verið að virkja Samhæfingastöðina í Skógarhlíð. 29. maí 2008 16:14 Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur sagður látinn eftir bílslys á Ítalíu Erlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Hætta leitinni í Meradölum Innlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent „Svarta ekkjan“ fannst látin Erlent Barn meðal látinna í rútuslysi Erlent Fleiri fréttir Rann á snjóruðningstæki og bíllinn ókökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Sjá meira
Með minni Suðurlandsskjálftum þrátt fyrir mikla eyðileggingu Suðurlandsskjálftinn í dag er með minni Suðurlandsskjálftunum síðan að mælingar hófust en nú er talið að hann hafi verið um 6,2 stig á Richters-kvarða. 29. maí 2008 21:03
Fjöldahjálparstöð sett upp á Selfossi Fréttir berast nú af því að nokkrir hafi slasast á Selfossi og víðar á Suðurlandi af völdum skjálftans í dag. Samkvæmt Almannavörnum voru þeir fluttir á heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi en læknar þar eru hræddir um að skemmdir hafi orðið á byggingunni og því er ekki óhætt að taka við sjúklingum. Bygginging mun vera töluvert mikið skemmd og stendur til að rýma hluta hússins. 29. maí 2008 16:39
Lögreglan keyrir um með gjallarhorn í Hveragerði Lögreglan keyrir um götur Hveragerðis og biður fólk um að vera utandyra. Hætta er á eftirskjálftum og er fólk í nágrenninu beðið um að halda sig utandyra 29. maí 2008 16:58
300 björgunarsveitarmenn að störfum í Árnessýslu Yfir 300 björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú að störfum á jarðskjálftasvæðinu í Árnessýslu. Flutt hafa verið tjöld og greiningastöðvar á svæðið. 29. maí 2008 19:01
Mikið tjón í Eden en í lagi með Bóbó Sveingbjörg Guðnadóttir verslunarstjóri í Eden í Hveragerði segir allt vera í rúst í búðinni. „Það bara hrundi allt niður sem gat hrunið,“ segir Sveinbjörg sem segir þennan skjálfta þann stærsta sem hún hefur upplifað. Búðinni var lokað í kjölfarið. 29. maí 2008 17:11
Fjármálaráðherra er umhugað um fólkið Árni Mathiesen segir ljóst að jarðskjálftinn í dag verði ræddur á fundi ríkisstjórnarinnar sem haldinn er á morgun. Árni er staddur á Selfossi til að kynna sér aðstæður og hafði einnig komið við í Hveragerði. Árni segir að eyðileggingin sé talsverð. 29. maí 2008 20:12
Stærstu eftirskjálftarnir yfir 4 á Richter Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur mikið af eftirskjálftum riðið yfir Suðurland eftir stóra skjálftann síðdegis. 29. maí 2008 18:56
Öflugur jarðskjálfti - 6,1 á Richter Öflugur jarðskjálfti reið yfir klukkan 15:45 í dag. Jarðfræðingur á Veðurstofunni sagði í samtali við Vísi að líklega hefði hann verið rúmlega 6 á Richter kvarðanum, sennilega á bilinu 6,1- 6,3. Upptök skjálftans voru í Ölfusi, nær Reykjavík en Suðurlandsskjálftarnir sem riðu yfir sumarið 2000. 29. maí 2008 15:48
Á þriðja tug manna slasaðir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir segir að á þriðja tug manna hafi slasast í jarðskjálftanum í dag. Enginn þó alvarlega svo vitað sé. Meiðslin eru allt frá skrámum og skurðum til beinbrota. 29. maí 2008 20:06
Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöðvar víða á Suðurlandi Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöðvar í Vallarskóla á Selfossi, við íþróttamiðstöðina í Hveragerði, grunnskólanum í Þorlákshöfn, safnaðarheimilinu á Hellu, 29. maí 2008 20:19
Fólk beðið um að halda sig utandyra Þeir sem þarfnast aðstoðar vegna skjálftans eru beðið um að hafa samband við Neyðarlínuna,112. 29. maí 2008 16:30
Búið að opna Óseyrarbrú Aðeins Óseyrarbrú hefur verið lokað eftir skjálftann síðdegis en aðrir vegir eru opnir. Greinilegar skemmdir hafa orðið á brúnni en hún hefur nú verið opnuð. 29. maí 2008 18:27
Jarðskjálfti við Ingólfsfjall Jarðskjálfti sem mældist 3,2 á Richter varð við suðvesturenda Ingólfsfjalls, um 5 km norðvestur af Selfossi, í dag klukkan 14:41. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn hafi orðið á um 5 kílómetra dýpi og að skjálftar séu ekki óalgengir á þessum slóðum. 29. maí 2008 15:31
Búið að loka Ölfusárbrúnni Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er búið að loka Ölfusárbrúnni á meðan verið er að kanna skemmdir á hennni. Einnig hefur vegur við gosströnd farið í sundur sem og á veginum við Eyrarbakka. 29. maí 2008 16:13
Unnið að því að ná yfirsýn yfir stöðu mála Í Samhæfingarstöðinni er nú unnið að því að ná yfirsýn yfir stöðu mála á Suðurlandi. 29. maí 2008 21:36
Sjúkrahúsið á Selfossi rýmt Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur verið rýmd vegna hættu á öðrum stórum skjálfta. Verið er að fara með fólk út í rútur en flestir halda þó ró sinni. 29. maí 2008 18:33
Mikið tjón í Heiðarbrún í Hveragerði Þau Ingibjörg Garðarsdóttir og Róbert Hlöðversson eru búsett á Heiðarbrún 66 í Hveragerði en í þeirri götu virðist einna mesta eignatjónið í skjálftanum átt sér stað. Ingibjörg segist blessunarlega hafa verið stödd út á götu þegar skjálftinn reið yfir. Hún segist ekki hafa heyrt af meiðslum hjá þeim sem búsettir eru í götunni en tjónið er gífurlegt. 29. maí 2008 19:12
Skjálftinn grynnri en sá sem var árið 2000 „Þessi skjálfti er að vissu leyti verri en sá sem var árið 2000 því að þessi er grynnri en sá sem var þá," segir Sigurður Ragnarsson, veðurfræðingur á Stöð 2. 29. maí 2008 16:28
Almannavarnarnefnd: Fólki heimilt að snúa aftur heim Að mati sérfræðinga eru minni líkur en meiri á því að eftirskjálftar af þeirri stærð þess sem gekk yfir í dag muni fylgja. 29. maí 2008 20:36
Hélt að þetta væri mitt síðasta Bergljót Davíðsdóttir blaðamaður er búsett í Hveragerði og hún hélt að það væri hennar síðasta þegar jarðskjálftinn reið yfir nú fyrir skömmu. 29. maí 2008 16:15
TM og Vís biðja fólk að taka myndir af skemmdum Tryggingamiðstöðin vill benda fólki sem orðið hefur fyrir tjóni af völdum jarðskjálfta á að taka ljósmyndir af skemmdunum og tilkynna tryggingafélagi sínu þær sem fyrst. Þegar málið hefur verið skoðað af tryggingafélagi ákvarða Viðlagasjóður og tryggingafélag næstu skref. 29. maí 2008 18:23
Fjöldahjálparstöðvar opnar í Hveragerði og á Selfossi í nótt Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins verða opnar í Hveragerði og á Selfossi í nótt. Lítil ásókn hefur verið í fjöldahjálparstöðvarnar í nágrannabæjunum, og hefur því verið ákveðið að loka á Hvolsvelli, Hellu, Þykkvabæ, Stokkseyri og Eyrarbakka fyrir miðnætti. 29. maí 2008 22:23
„Það bara fór allt á hliðina“ „Það bara fór allt á hliðina," segir Lárus Bjarnasoníbúi á Selfossi sem sendi Vísi myndir af heimili sínu eftir skjálftann. 29. maí 2008 16:52
Rauði krossinn virkjar Hjálparsímann 1717 Rauði kross Íslands hefur virkjað neyðarvarnarkerfi sitt og opnað fjöldahjálparstöðvar í Hveragerði og Selfossi. Þá hefur Hjálparsíminn 1717 verið opnaður fyrir aðstandendur sem vilja spyrjast fyrir um afdrif skyldmenna. 29. maí 2008 18:03
Skjálftinn hindraði Sirrý ekki í að halda sjötugsafmælið Sirrý Geirsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning, fagnaði 70 ára afmæli sínu í dag og hafði boðið til sín fjölda gesta á Hótel Örk í Hveragerði. Skjálftinn reið yfir um það leyti sem gestir voru að ganga í húsið. Að sögn Sirrýar urðu miklar skemmdir á hótelinu, einkum í eldhúsinu og var því ákveðið að hleypa engum inn í húsið. 29. maí 2008 20:55
Heilsuhælið rýmt - Neyðartjöldum komið fyrir við Hótel Örk Heilsuhælið á Hveragerði var rýmt í dag skömmu eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Sæmundur Ingibjartsson yfirsmiður á hælinu segir að rúmlega 130 manns hafi verið á hælinu þegar skjálftinn reið yfir en enginn hafi slasast. Flestir vistmenn eru farnir til síns heima. 29. maí 2008 18:41
Vegfarandi undir Ingólfsfjalli segist aldrei hafa lent í öðru eins Kristinn Guðlaugsson var á ferð í sendiferðabíl undir Ingólfsfjalli þegar jarðskjálftinn reið yfir. Hann segist aldrei hafa lent í öðru eins. 29. maí 2008 16:32
Grjóthrun í Herjólfsdal Lögregla í Vestmannaeyjum segir grjót hafa hrunið niður í Herjólfsdal en ekki hafi enn verið tilkynnt um neitt tjón af völdum jarðskjálftans sem fannst þó glöggt þar. Vestmannaeyingur sendi meðfylgjandi mynd af grjóthruninu. 29. maí 2008 16:29
Stöðugt leitað eftir læknishjálp vegna skjálftans Stöðugur straumur fólks hefur verið á heilsugæslustöðina í Hveragerði frá því að skjálftinn reið yfir. 29. maí 2008 17:10
Óútskýranleg flóðbylgja í Færeyjum Íbúar við Hvannasund í Færeyjum hafa verið varaðir við að vera niðri í fjöru eftir óútskýranlega flóðbylgju sem gekk þar yfir í gær. 29. maí 2008 15:09
Voru nýkomin úr hestaferð þegar skjálftinn reið yfir Fólk á vegum Eldhesta í Hveragerði var nýkomið úr hestaferð þegar skjálftinn reið yfir um fjögurleytið í dag. 29. maí 2008 18:13
Rauði krossinn tekur á móti fólki við Hótel Örk Í Hveragerði getur fólk safnast saman á bílaplaninu nálægt Hótel Örk og mun viðbragðshópur Rauða krossins koma þangað innan stundar með aðstöðu.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgum. 29. maí 2008 17:21
Brúnt moldarský yfir Ingólfsfjalli -Ég hélt að húsið myndi hrynja og að við myndum öll deyja, sagði Ásdís Sigurðardóttir, sem býr í fjölbýlishúsi að Fossvegi 2 á Selfossi, í samtali við Vísi. 29. maí 2008 16:17
Allar björgunarsveitir í Árnessýslu kallaðar út Töluverðar skemmdir hafa orðið á húsum á Selfossi vegna skjálftan sem reið yfir á fjórða tímanum. Verið að virkja Samhæfingastöðina í Skógarhlíð. 29. maí 2008 16:14