Innlent

Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöðvar víða á Suðurlandi

Fjöldahjálparstöð verður opnuð í Menntaskólanum við Hamrahlíð ef þörf krefur.
Fjöldahjálparstöð verður opnuð í Menntaskólanum við Hamrahlíð ef þörf krefur.
Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöðvar í Vallarskóla á Selfossi, við íþróttamiðstöðina í Hveragerði, grunnskólanum í Þorlákshöfn, safnaðarheimilinu á Hellu, grunnskólanum á Hvolsvelli, grunnskólanum á Stokkseyri og í Þykkvabæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.

Þar segir að um 100 sjálfboðaliðar Rauða krossins af höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum séu nú á leið til þessara staða til að aðstoða sjálfboðaliða á svæðinu við skráningu fólks, aðhlynningu og til að veita sálrænan stuðning. Fólki sé einnig veitt hressing og matur eftir föngum

Í Hveragerði sjá sjálfboðaliðar Rauða krossins um að elda mat fyrir þá sem vilja, og er öllum bent á að fara að íþróttamiðstöðinni.

Áfallateymi Rauða krossins er nú að störfum á vettvangi. Þá eru tveir túlkar í fjöldahjálparstöðinni á Selfossi, einn pólskur og hinn rússneskur.

Jafnframt er Rauði krossinn viðbúinn að taka við fólki hér á höfuðborgarsvæðinu sem ekki kemst í húsaskjól hjá ættingjum og vinum, og verður fjöldahjálparstöð opnuð í Menntaskólanum í Hamrahlíð ef þörf er á.

Þá er fólki bent á hjálparsímann 1717 sem sér einnig um að koma upplýsingum til aðstandenda, og er fólki bent á að hringja í leitarþjónustu Rauða krossins í 1717.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×