Erlent

Hliðarspegill sýnir blinda blettinn

Óli Tynes skrifar
Blindi bletturinn afhjúpaður.
Blindi bletturinn afhjúpaður. MYND/AP

Það kannast sjálfsagt margir ökumenn við að hafa litið í hliðarspegilinn áður en þeir beygðu, og ekki séð neitt vegna þess að bíllinn á eftir var of nálægt.

Ford verksmiðjurnar hafa nú séð við þessu. Frá næsta ári verða settir nýir speglar á alla þeirra bíla, sem sýna blinda blettinn efst í horni spegilsins. Verksmiðjurnar eiga von á því að þetta muni fækka árekstrum til muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×