Golf

Singh sigraði á heimsmótinu

NordcPhotos/GettyImages
Vijay Singh tryggði sér sigur á átjándu holu eftir æsispennandi lokabaráttu við þrjá aðra kylfinga á heimsmótinu í golfi í gærkvöldi.

Lee Westwood, Vijay Singh og Phil Mickelson voru allir jafnir og efstir á 8 höggum undir pari fyrir lokahringinn. Singh gat tekið þægilega forystu strax á annarri holu þar sem hann rétt missti af erni en náði þó fugli.

Mickelson var inni í toppbaráttunni en spilaði sig út úr henni með því að fá þrjá skolla á síðustu fjórum holunum. Hann fór lokahringinn á pari og lauk keppni á alls átta höggum undir pari og þurfti að láta sér lynda fjórða sætið ásamt Retief Goosen.

Lee Westwood virtist vera að missa af lestinni en kom sér aftur inn í toppbaráttuna og var á endanum annar tveggja kylfinga sem gátu náð sigrinum af Singh. Westwood lék hringinn á einu undir pari og hafnaði í öðru sæti ásamt Stuart Appleby sem skyndilega blandaði sér í baráttuna undir blálokin með þremur fuglum.

En Singh dugði að setja niður þetta stutta pútt á átjándu til að tryggja sér sigurinn sem hann og gerði og tryggði sér þannig sinn fyrsta sigur á heimsmótaröðinni og fékk hann 110 milljónir króna í sigurlaun. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Singh á stórmóti í 17 mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×