Formúla 1

Webber missir af mótinu á Wembley

Hugað að Mark Webber á slysstað í Tasmaníu í dag.
Hugað að Mark Webber á slysstað í Tasmaníu í dag. Mynd: Getty Images

Ástralinn Mark Webber átti að vera meðal keppenda í meistaramóti ökumanna Wembley 14. desember. Hann átti að vera í úrvali Formúlu 1 ökumanna í mótinu, en hann fótbrotnaði í dag í Ástralíu í þríþrautarkeppni sem hann tók þátt í. Webber lenti framan á bíl á reiðhjóli.

Meistaramótið á Wembley er endapunkturinn á tímabili akstursíþróttamanna og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Webber fór í uppskurð í dag og þurfti að negla saman brotið. Hann getur því ekki ekið á Wembley, en talsmenn Red Bull sögðu í dag að hann yrði klár í slaginn fyrir fyrsta Formúlu 1 mót næsta árs. Fyrsta mótið er í Ástralíu í lok mars.

Í ljósi meiðslanna mun Webber lítið geta ekið á vetraræfingum keppnisliða og meira mun því mæða á nýja manninum í liðinu, Sebastian Vettel. Þá er líklegt að Sebastian Buemi aki meira en ella, en hann hefur verið þróunarökumaður liðsins. Reyndar er Torro Rosso að skoða hvort Buemi verður ráðinn til liðsins.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×