Fótbolti

Keisarinn vill fá Gattuso til Bayern

NordcPhotos/GettyImages

Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, segist ólmur vilja fá ítalska miðjumanninn Gennaro Gattuso í raðir liðsins á næstu leiktíð.

Gattuso ætlar að taka sér góðan tíma til að skoða næsta skref á ferlinum í sumar, en talið er líklegt að hann fari frá AC Milan þar sem hann hefur verið lykilmaður undanfarin ár.

Hann hefur m.a. verið orðaður við Arsenal að undanförnu.

"Er það rétt að Gattuso vilji fara frá Milan? Ef svo er, yrði hann frábær kostur fyrir Bayern í Meistaradeildinni. Raunar fullkominn kostur," sagði Beckenbauer í samtali við Gazzetta dello Sport í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×