Formúla 1

Stór stund Senna á Spáni

Bruno Senna gerir sig kláran fyrir aksturinn og systir hans Bianca Senna bíður eftir frumsporum hans í Formúlu 1 með Honda.
Bruno Senna gerir sig kláran fyrir aksturinn og systir hans Bianca Senna bíður eftir frumsporum hans í Formúlu 1 með Honda. Mynd: Getty Images

Brasilíumaðurinn Bruno Senna ók Formúlu 1 bíl í fyrsta skipti í gær. Fjölmiðlamenn biðu þess með eftirvæntingu, þar sem Bruno er frændi Ayrtons heitins Senna, sem var goðsögn í Formúlu 1.

Ayrton lést í slysi 1994 og um leið bannaði móðir Bruno honum að keppa í kappakstri. Hann þurfti því að bíða þess að ná lögaldri, en Bruono þótti mikið efni á yngri árum.

"Ég áttaði mig á mikilvægi þessarar stundar þegar ég ók út úr skúrnum í fyrsta skipti. Það hefur verið draumur minn að keyra Formúlu 1 bíl frá unga aldri", sagði Senna, en ljósmyndarar kaffærðu nánast starfsmenn Honda á staðnum.

"Ég var farinn á ná tökum á bílnum eftir tvær umferðir og nokkra hringi á bílnum. Það er margt sem þarf að læra í svona græju. Bíllinn er ólíkur GP 2 bílnum sem ég keppti á. Ég kem til með að auka hraðann á miðvikudaginn þegar ég ek bílnum á ný", sagði Senna sem náði fimmtánda besta tíma.

Senna er að keppa um sæti hjá Honda liðinu á næsta ári, en Honda er að prófa ungliða til að fylla skarð Rubens Barrichello við hlið Jenson Button.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×