Formúla 1

Hamilton hrósað í hástert

Lewis Hamilton með bróðir sínum og föður að fagna titlinum í Brasilíu.
Lewis Hamilton með bróðir sínum og föður að fagna titlinum í Brasilíu. Mynd: Getty Images

Breski forsætisráðherran Gordon Brown er á meðal þeirra sem hafa hrósað landa sínum Lewis Hamilton í hvívetna eftir að hann fagnaði meistaratitilinum í Formúlu 1 í gær.

"Ég vil óska Lewis Hamilton til hamingju með titilinn. Ég tel að alllir í Bretlandi hylli hann og trúlega er þetta fyrsti titilinn af mörgum til handa honum", sagði Brown sem var í Saudi Arabíu í gær.

Þrefaldi meistarinn Jackie Stewart er mikill aðdándi Hamiltons. "Hann er trúlega besti kappakstursökumaður heims og fleiri titlar munu fylgja í kjölfarið. Hann var heppinn að fá stuðning McLaren á unga aldri og hafði hæfileikanna til að nýta tækifærið. Síðasta beygjan í síðasta mótinu réð úrslitum. Það er alveg magnað", sagði Stewart.

Hamilton fór framúr Timo Glock á Toyota í síðustu beygju, sem tryggði Hamilton fimmta sætið. Það dugði til að tryggja Hamilton titilinn með eins stigs mun. Felipe Massa vann lokamótið en það dugði ekki til.

Glock sagðist ekki hafa haft hugmynd hve miklu máli staða hans í brautinni skipti í síðasta hring. Hann sagðist hafa verið bjarglaus á þurrdekkjum á blautri braut eftir rignigarsvettu.

Lokastaðan hér














Fleiri fréttir

Sjá meira


×