Lífið

New York Post: Saks kóngur "á ís"

Frétt New York Times
Frétt New York Times

„Hlutur íslenks tískukóngs í Saks versluninni á fimmtu breiðgötu er allt í einu ekki eins mikið í tísku heimafyrir og áður," segir í umfjöllun Bandaríska götublaðsins New York Post. Þar er fjallað um Jón Ásgeir Jóhannesson, sen Baugur á hlut í hinni heimsþekktu verslun í New York, Saks. Ummæli Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra á dögunum hafa vakið athygli vestra, en Björgvin sagði það siðferðilega skyldu auðmanna að færa eignir sínar til Íslands. Þetta túlkar blaðið á þann hátt að hluturinn í Saks hljóti að falla undir þessi tilmæli.

Í greininni er Jóni Ásgeiri lýst sem fjörutíu og eins árs gömlum milljarðamæringui með "heavy-metal" hárgreiðslu og smekk fyrir einkaþotum og snekkjum. Blaðið bendir á að síðast í Ágúst hafi Jón Ásgeir lýst yfir vilja til þess að auka við hlut sinn í Saks og þá var jafnvel rætt um yfirtöku. Fjármálakrísan hafi hins vegar breytt áherslum hjá honum og er haft eftir ónefndum heimildarmanni að Jón hafi um flest annað að hugsa en hlutinn í Saks. Einnig er haft eftir fólki sem sagt er þekkja til að spurningin nú sé hvort Baugur neyðist til að losa um fé með því að selja Saks hlutinn.

Blaðið segir öll spjót standa á Jóni Ásgeiri, sem hafi í krafti eignaraðildar sinnar í einum stærsta banka Íslands tekið gríðarstór lán sem hann geti nú ekki staðið skil á. Þá er einnig vitnað til orða Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra þegar hann líkti FL Group við Enron.

New York Post minnist einnig á viðtalið sem Egill Helgason tók við Jón Ásgeir á dögunum. Þar er Egill sagður "cheeky" sem mætti úttleggja sem svo að Egill sé óforskammaður þegar hann spyr Jón hvort hann geti hugsað sér að vinna í Bónus á lyftara. Þá er haft eftir Jóni að hann hafi ekki verið ábyrgur fyrir þeim áhættumiklu fjárfestingum sem bankarnir fóru í.

„Milljarðamæringnum og glaumgosanum tókst þó ekki að sannfæra landa sína," segir blaðamaðurinn og vitnar til fréttarinnar á Daily Mail þar sem sagt var frá því þegar sást til Jóns og vina hans á 101 Hótel að „drekka dýrt vín á sama tíma og eignir hluthafa brunnu upp."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.