Formúla 1

Brotthvarf Honda öðrum viðvörun

David Richards fagnar góðum árangri með Jenson og John Button, en hann var framkvæmdarstjóri BAR Honda en var bolað burt.
David Richards fagnar góðum árangri með Jenson og John Button, en hann var framkvæmdarstjóri BAR Honda en var bolað burt. Mynd: Getty Images

David Richards fyrrum framkvæmdarstjóri BAR Honda liðsins segir brotthvarf Honda úr Formúlu 1 öðrum liðum viðvörun. Richards var á sínum tíma bolað frá starfi sínu og eftir það gekk hvorki né rak hjá BAR Honda sem breyttist í lið í eigu Honda.

Richards gæti núna komið til sögunnar aftur í ljósi vandamála Honda. Hann er með tvo fjárfesta í Persaflóa sem vilja styðja hann til að kaupa bækistöðvar Honda og það mætti segja að ef af því verður þá fengi Richards uppreisn æru. Hann er þó ekkert ginnkeyptur fyrir slíku, en fyrirtæki hans Prodrive sér um Subaru í heimsmeistaramótinu í rallakstri.

"Honda liðið var skipað frábæru starfsfólki, en það er ljóst að öll lið verða að skoða fjárhagsstöðu sína. Ég er með opinn huga varðandi það að taka að mér leifar liðsins, en það er mikil yfirbygging sem fylgir bæikstöðvunum í Brackley og það er ekki víst að það sé besti kosturinn í stöðunni", sagði Richards.

Hann ætlaði að stofna eigin lið fyrir tveimur árum, en náði ekki samningum við FOM og FIA um málið og það féll um sjálft sig. Önnur keppnislið voru á móti því að nýtt lið væri stofnað, en hann hugðist nota McLaren undirvagn og vél. Sama og Force India hefur nú fengið leyfi til að nota óhindrað.

Richards þótti mjög fær framkvæmdarstjóri og undir hans stjórn var BAR Honda í toppslagnum 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×