Klitschko valtaði yfir Rahman 14. desember 2008 13:44 Fádæma auðveldur sigur Klitschko sagði líklega meira um stöðu mála í þungavigtinni en hæfileika hans NordicPhotos/GettyImages
Úkraínumaðurinn Wladimir Klitschko gjörsigraði Bandaríkjamanninn Hasim Rahman í bardaga þeirra í Mannheim í Þýskalandi í gærkvöld. Hann heldur þar með í WBO og IBF beltin sín í þungavigt. Bardaginn í gær var grátlega ójafn. Hinn 32 ára gamli Klitschko gjörsigraði Rahman með röð af eitruðum stungum sem tóku úr hann allan mátt. Bandaríkjamaðurinn stóð fljótlega á tréfótum og gat ekki með nokkru móti hreyft sig eða sótt á móti. Klitschko sló Rahman fyrst í gólfið í fimmtu lotu og dómarinn stöðvaði bardagann í þeirri sjöttu. Rahman sló í gegn árið 2001 þegar hann rotaði Lennox Lewis mjög óvænt í titilbardaga. Skemmst er frá því að segja að núna er ekki árið 2001. Klitschko-bræðurnir Wladimir og Vitali bera höfuð og herðar yfir aðra hnefaleikara í þungavigtinni í dag, en þeir lofuðu móður sinni að mætast aldrei í hringnum og skipta því með sér þeim beltum sem í boði eru. Þessi stórkostlega íþróttagrein má sannarlega muna fífil sinn fegurri og mikil vöntun er á nýjum og hungruðum stjörnum - ekki síst í þungavigtinni.
Box Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Sjá meira