Innlent

Ónýtum húsum lokað í Ölfusi

Lögregla lokaði ellefu húsum í Ölfusi í gærkvöld sem talin eru ónýt eða óíbúðarhæf vegna skemmda eftir jarðskjálftann síðastliðinn fimmtudag.

Þetta eru fimm íbúðarhús, eitt hús fyrir bændagistingu, eitt starfsmannahús og fjögur útihús.

Eftir fund byggingafulltrúa og almannavarnarnefndar í Ölfusi var ákveðið að loka þeim þar sem þau teljast ekki örugg og voru þau innsigluð.

Sveitarfélagið hefur útvegað einni fjölskyldu húsnæði en aðrir dvelja hjá ættingjum. Frekari ákvörðun verður tekin um húsin í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×