Formúla 1

Nakajima vill endurgjalda Williams traustið

Kazuki Nakajima frá Japan þykir einstaklega hógvær af Formúlu 1 ökumanni að vera og verður ökumaður Williams 2009.
Kazuki Nakajima frá Japan þykir einstaklega hógvær af Formúlu 1 ökumanni að vera og verður ökumaður Williams 2009. mynd: kappakstur.is

Kazuki Nakajima hjá Williams var staðfestur ökumaður Williams árið 2009 í gærlvöldi. Hann er þakklátur fyrir það traust sem Frank Williams sýnir honum, en Nakajima er eini Japaninn í Formúlu 1.

Hann verður á heimavelli um aðra helgi, þegar keppt verður á Fuji brautinni en hann er sonur Saturo Nakajima sem gerði garðinn frægan á árum áður í Formúlu 1. Toyota hefur stutt við bakið á Nakajima og sér Williams fyrir vélum, en þó gegn greiðslu. Liðið fær sömu vélar og Toytoa liðið notar. Toyota á Fuji brautina og því kemur tilkynning Williams á þessum tímapunkti ekki á óvart.

"Tímabilið hefur verið misjafnt hjá mér. Stundum hef ég staðið jafnfætis Nico Rosberg í mótum á árinu. Svo lenti ég í vanda á Spa og Monza. Það var því mikilvægt fyrir mig að ná árangri í Singapúr um síðustu helgi", sagði Nakajima.

Nakajima komst í fyrsta skipti í 10 manna úrslit í tímatökunni, en lauk síðan kappakstrinum í áttunda sæti eftir góða spretti. Félagi hans Rosberg varð í öðru sæti eftir vel útfærða keppnisáætlun. Formúlu 1 er geysilega vinsæl í Japan og Takum Sato er að reyna komast aftur í Formúlu 1 með Torro Rosso liðinu.

Á meðan heldur hin hógværi Nakajima uppi heiðri Japana og ljóst að heimamenn muni styðja vel bið bakið á honum á Fjuji brautinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×