Erlent

Bandaríkjamenn endurvopna her Georgíu

Óli Tynes skrifar
Rússar ollu her Georegíu miklu tjóni.
Rússar ollu her Georegíu miklu tjóni.

Bandaríkin gera því skóna að þau muni hjálpa Georgíu að endurskipuleggja og endurreisa her sinn eftir bardagana við Rússa í síðustu viku.

Bandaríski hershöfðinginn John Craddock er nú í heimsókn í Georgíu. Til þess að meta ástandið.

Craddock er jafnframt æðsti yfirmaður herja NATO í Evrópu. Hann sagði við fréttamenn að hann byggist við að Bandaríkin muni hjálpa georgíska hernum þar sem Georgíumenn væru bandamenn þeirra í stríðiinu gegn hryðjuverkum.

Um tvöþúsund georgískir hermenn voru til skamms tíma í Írak. Georgía hefur sótt um aðild bæði að NATO og Evrópusambandinu.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×