Formúla 1

Massa: Heimskulegt að hugsa um Hamilton

Massa og Hamilton munu berjast um titilinn sem Raikkönen vann í fyrra.
Massa og Hamilton munu berjast um titilinn sem Raikkönen vann í fyrra. mynd: Getty Images

Felipe Massa segist ekki gefa Lewis Hamilton neinn gaum eftir að hafa náð besta tíma í tímatökum í dag. Massa stefnir á sigur í mótinu og segir að árangur Lewis Hamilton ráði því hvor verður meistari.

Ef Massa vinnur, þá verður Hamilton að ná fimmta sæti til að verða meistari. Ef það tekst ekki, þá verður Massa meistari. Fyrir aftan Hamilton ræsir Fernando Alonso.

"Ég er ekki að hugsa um hvað Hamilton er að gera. Það er heimskulegt. Ég verð að einbeita mér að akstrinum, ekki hugsa um keppinautinn", sagði Massa.

"Það eru 73 hringir á morgun og keppnin er löng og ströng. Bíllinn er góður og hefur alltaf verið góður á þessari braut. Það er rafmögnuð stemmning á heimavelli mínum og auðvitað hjálpar það mér. Ég er fremstur á ráslínú þriðja árið i röð og það er frábær tilfinning", sagði Massa.

Hamilton var ekki eins glaðreifur og Massa, en líst ágætlega á stöðuna. "Mótið verður erfitt og ég verð að passa upp á dekkin. Ég held það sé öruggt að keppinautar okkar eru á bensínléttari bílum, sem gæti komið þeim í koll", sagði Hamilton.

Sjá brautarlýsingu og tölfræði

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×