Leiðtogar Evrópusambandsin hvöttu alþjóðabanka fyrir helgina að hjálpa til við að róa markaði með því að gefa upp tap þeirra á síðustu mánuðum. Hvatningin kemur í kjölfar skýrslu sem sýnir að verðbólga á Evrusvæðinu hafi náð nýjum hæðum. Styrkur Evrunnar var meðal umræðuefna leiðtogafundar ESB en málið veldur vaxandi áhyggjum innan sambandsins.
Verðbólga í þeim 15 löndum þar sem Evra er gjaldmiðill varð 3,3 prósent í síðasta mánuði samkvæmt tölum sambndsins. Það er nýtt met. Fall dollarsins var einnig til umræðu á fundinum. Á sama tíma og Janez Jansa forsætisráðherra Slóveníu talaði um styrk Evru sem alvarlegt mál, náði Evran nýju hámarki gegn Bandaríkjadollar þegar gengið náði 1,5652.
Hátt gengi Evru gerir þýskum og frönskum útflytjendum erfiðara fyrir að selja vörur til Bandaríkjanna. Gengið gerir þó innflutning olíu sem verðlögð er í dollurum hagstæðan og gæti þannig haft áhrif á að verðbólga lækki.
Dollarinn hefur lækkað vegna svartsýni sem ríkir um efnahag í Bandaríkjunum sem hefur leitt til getgátna um að Seðlabanki landsins muni halda áfram að lækka vexti til að reyna að lífga efnahag landsins við.