Fótbolti

Annar sigur AGF í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kári Árnason, til vinstri, í upphitun fyrir landsleik.
Kári Árnason, til vinstri, í upphitun fyrir landsleik. Mynd/E. Stefán
Kári Árnason lék allan leikinn með AGF í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem vann 2-1 sigur á Vejle í dag.

Þetta var annar sigur AGF í röð og fjórði sigur liðsins í síðustu fimm leikjum.

AGF er í fimmta sæti deildarinnar með fimmtán stig eftir ellefu leiki. OB er á toppi deildarinnar með 24 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×