Erlent

Gaf Obama Hillary fingurinn? -myndband

Óli Tynes skrifar
Barack Obama.
Barack Obama.

Barack Obama er sakaður um að hafa gefið Hillary Clinton fingurinn, á framboðsfundi í New York.

Hillary var ekki viðstödd, en þegar Obama nefndi nafn hennar lyfti hann hægri hendi og klóraði sér á kinnina með löngutöng. Kliður fór um salinn en Obama brosti hrekkjalega og hélt áfram að flytja ræðu sína.

Hlustendur geta sjálfir dæmt um þetta atvik með því að skoða myndbandið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×