Danskur sérfræðingur kemur í dag til að fanga ísbjörninn 17. júní 2008 09:32
Danskur sérfræðingur sem fanga á ísbjörninn sem sást í gær við bæinn Hraun á Skaga í Skagafirði er væntanlegur til landsins um hálf þrjú í dag. Flogið er með hann og búr sem á að nota undir björninn beint frá Kaupmannahöfn til Akureyrar. Þaðan verður búrinu ekið á Skaga en Landhelgisgæslan mun fljúga með sérfræðinginn þangað. Björninn verður skotinn með deyfilyfi og síðan settur í búrið. Enn er óljóst hvað svo tekur við en reyna á að koma honum til Grænlands. Óvíst er þó hvort það takist þar sem sérfræðingar verða fyrst að skoða dýrið. Ísbjörninn er enn hinn rólegasti en vel var fylgst með honum í nótt. Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki sagði í samtali við fréttastofu að björninn hafi verið á vappi undir morgun og fært sig nokkur hundruð metra í vesturátt. Hann er þó enn á Skagatánni og sést vel frá bænum Hrauni. Ekki hefur verið nein skipuleg leit að öðrum bjarndýrum á svæðinu. Björgunarsveitirnar Strönd og Skagafjarðarsveit fóru hins vegar í skála á svæðinu í gær og könnuðu hvort að einhver hefði orðið var við birni. Svo var ekki. Þyrla frá Landhelgisgæslunni er á Sauðárkróki og verður hún notuð ef björninn fer á stað til að fylgja honum eftir.
Mest lesið Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Allir farþegarnir látnir Erlent Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Innlent Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Innlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Baráttukonur minnast Ólafar Töru Innlent Ógnaði fólki með barefli í bænum Innlent Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Innlent Ólöf Tara Harðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Baráttukonur minnast Ólafar Töru Bæjarskrifstofur og heimili rýmd „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Stórir pollar leika bílstjóra grátt Hellisheiði opin á ný Vonskuveður framundan Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Um hundrað manns dvelja í Grindavík Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara „Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“ Ólöf Tara Harðardóttir er látin Óveður í beinni, gímaldið og skemmdir eftir vatnstjón Hellisheiðin lokuð og óvissustig vegna snjóflóða Sjá meira